|
Opnum augun – yfirlýsing frá stjórn WIFT á Íslandi
WIFT (Women In Film and Television) á Íslandi stóð fyrir gjörningi á Eddunni um síðustu helgi þar sem konur í kvikmyndagerð mættu í jakkafötum. Tilgangur gjörningsins var ekki að gagnrýna úthlutanir kvikmyndasjóðs heldur að vekja athygli á hversu einsleitt samfélagið er þegar aðeins sögur karla eru sagðar og sýn karla ein metin vænleg til framleiðslu. Tilgangurinn var heldur ekki að gera lítið úr karlkyns kollegum okkar heldur var tilgangurinn að skapa umræðu um þetta alvarlega vandamál sem veik staða kvenna innan stéttarinnar er.
| Vantar fleiri sögur!
Það vantar tvímælalaust fleiri kvenhlutverk og fleiri sögur um konur, segir kvikmyndagerðarkonan Dögg Mósesdóttir sem er formaður félagsins Konur í kvikmyndum og sjónvarpi í viðtali við www.visir.is
|
Ritvöllur á nýju ári
Þær Helena Harsita Stefánsdóttir og Guðrún Ragnarsdóttir stíga fram á Ritvöllinn þann 5. febrúar og ræða um handritin sem þær eru að skifa um þessar mundir. Mætið hressar á Factory.
| Ritvöllur tekur til starfa á ný
Ert þú með kvikmyndahandrit í vinnslu? Bíómynd, sjónvarpsverkefni, heimildamynd eða stuttmynd?
|
RIFF auglýsir eftir íslenskum kvikmyndum
Skipuleggjendur Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík (RIFF) auglýsa eftir íslenskum kvikmyndum til sýningar á hátíðinni. RIFF verður haldin í 9. sinn dagna 27. september til 7. október, 2012.
| Ritvelli fram haldið
Ritvallarfundurinn í Faktorý s.l. þriðjudag tókst glimrandi vel! Ákveðið hefur verið að halda annan slíkan fund í lok nóvember (en á öðrum og hentugri samkomustað) og þróa hugmyndina áfram.
|
Upplýsingar um styrkveitingar 2009-2010
Hvernig skiptast styrkir til handritagerðar og framleiðslu milli kynjanna á allra síðustu árum?
| Sjaldséðar stiklur eftir konur
WIFT samtökin á Íslandi (Women in Film and Television) standa fyrir bíósýningu með myndum félagskvenna á kvennafrídaginn 19. júní næstkomandi í Bíó Paradís klukkan 20.00. Yfirskrift sýningarinnar er "Sjaldséðar stiklur eftir konur" og verða sýnda fernar stuttmyndir og ein heimildarmynd en myndirnar eru nýjar og eiga það sameiginlegt að vera hvergi í sýningu á landinu sem stendur.
|
Dögg Mósesdóttir er nýr formaður
Dögg er án efa þekktust meðal WIFT kvenna fyrir frumkvöðlastarfið í tengslum við kvikmyndahátíðina Northern Wave, sem haldin hefur verið í Grundarfirði. En hún er stofnandi hátíðarinnar og aðaldrifsprauta.
| Aðalfundur WIFT
Aðalfundur WIFT var haldinn sunnudagskvöldið 22. maí síðastliðinn á Hressó í Austurstræti. Á fundinum fóru fram venjubundin aðalfundastörf, kjörin var ný stjórn og félagsgjöld ákveðin.
|
|