You are here :   Torgið  |  AFSLÁTTUR
Afsláttarkjör félaga Wift

Unnið er að því að afla afsláttarkjara til félaga í WIFT á Íslandi.  Stjórnin reiknar að sjálfsögðu með því að félagskonur meti þau afsláttarkjör, sem aflað er að verðleikum og greiði félagsgjaldið á gjalddaga. Það er fljótt að borga sig upp og vel það!

 luxor.is Luxor
Luxor er hluti af Saga film.
Kvikmyndadeild Luxor er stærsta kvikmyndatækjaleiga Íslands, með fullkominn búnað til auglýsinga og kvikmynda, filmutökuvélar, vídeótökuvélar, ljósabúnað og grip, með áralanga reynslu af innflutningi búnaðar til stærri verkefna.
Búnaður, sem passar bæði litlum og stórum verkefnum, hvort sem taka á upp stafrænt eða á filmu.
WIFT-konur fá 25% afslátt af tækjaleigu hjá Luxor.
Hafa skal samband við Pétur Óla, petur@luxor.is.
   
 kukl.is Kukl
Kukl er staðsett í Vatnagörðum 4 og skal haft samband við Varða, kukl@heimsnet.is.
Kukl er með ljósa og hljóðbúnað og upptökuvélar af ýmsum gerðum. Varði gefur WIFT konum allra besta afslátt hverju sinni og
segist þar með geta verið helmingi ódýrari en aðrir á markaðnum.
   
  Pegasus
Pegasus veitir framleiðslufyrirtækjum afslátt af tækjaleigu og Pegasus veitir félagskonum í WIFT, sem eru með slík fyrirtæki, sömu kjör.
Tækjaleigan útvegar allt sem þarf til framleiðslu stórra sem smárra verkefna hvort sem um er að ræða kvikmyndir, sjónvarpsefni eða auglýsingar.
Mikill metnaður er lagður í áreiðanlega þjónustu og tekið er mið af þörfum hvers og eins við útvegun á bestu fáanlegum tækjum.
Hafa skal samband við elli@pegasus.is.
   
  Beco
Veitir félagskonum WIFT góðan afslátt.
   
   Birna
Wift konur fá 10% afslátt af þessari frábæru hönnunarvöru. Í Reykjavík er búðin á Skólavörðustíg 2. Sjón er sögu ríkari á heimasíðunni www.birna.net.