Þú sækir um aðild að WIFT á Íslandi, með því að smella hér og fylla út nýskráningarformið.
Meðlimir. Full aðild.
Rétt til fullrar aðildar að samtökunum hafa allar konur sem starfa eða stunda nám við kvikmyndagerð eða sjónvarpsgerð, styðja meginmarkmið samtakanna og greiða félagsgjöld. Meðlimir hafa atkvæðisrétt á aðalfundum og leyfi til þátttöku í starfi og viðburðum samtakanna. Fullgildir aðilar hafa rétt til að kenna sig við félagið og nota skammstöfunina KIKS, Wift á íslandi með nafni sínu.
Gengið er í samtökin með því að greiða félagsgjöld. Skráningu úr samtökunum skal skila skriflega til stjórnar. Félagsgjöld eru ekki endurgreidd.
Styrktaraðilar.
Einstaklingum sem styðja markmið samtakanna en uppfylla ekki skilyrði greinar 4.1 er heimilt að ganga í samtökin sem styrktaraðilar. Öðlast þeir öll réttindin fullgildra meðlima að undanskildum atkvæðisrétti á aðalfundi samtakanna.
Munið að senda CV með umsókninni.
Skráningargjald er 1000 kr. og gengur uppí sem greiðsla á félagsgjöldum.