Hið gamalgróna prjón og hekl er orðið partur af vinsælli bylgju í nútíma og götulist. Við fylgjumst með alþjólegu lista og handverksfólki útfæra þetta listform hver á sinn hátt. Þetta litríka og alþjóðlega ferðalag byrjar á Íslandi og varpar meðal annars ljósi á það hvernig garn tengir okkur öll á einn eða annan hátt.

Hópur af alþjóðlegum listamönnum hefur skapað nýja bylgju nútímalistar. Þau umbreyta hefðbundnu handverki, hekli og prjónaskap. Ferðlag þessarar einstöku myndar byrjar á Íslandi sem leiðir okkur áfram í undraheim garnsins þar sem vægast sagt óhefðbundnir listamenn ferðast með okkur um allan heim til að koma á framfæri sínum skilaboðum.

Sænski sirkusinn Cirkus Cirkör sýnir okkur hvernig garnið getur verið myndlíking fyrir lífið, hvernig við erum í sífelldri leit og hvort við getum í raun prjónað heimsfrið? Pólska listakonan Olek þekur heila lest í Póllandi til heiðurs pólskrar ljóðlistar áður en hún tekst á við hinn karllæga listaheim í skilaboðum sem koma skýrt fram í verkum hennar í Berlín. Í Hawaii sendir Olek hafmeyju af stað í undirdjúpin til að vekja athygli á stöðu heimshafanna. Feministinn og ullargraffarinn Tinna saumar og heklar varfærin skilaboð með sterkum undirtón í hefðbundin verk og setur þau upp á óvenjulegum stöðum um heim allan og kemur þannig áfram skilaboðum sínum um jafnrétti, frið og pólitík.í Japan og Kanada hittum við Toshiko sem heklar gríðarleg leiksvæði til að hjálpa börnum að þróa heilbrigðara og hamingjusamara lífi í gegnum leik með garni. Þessir alþjóðlegu listamenn taka okkur með í ferðalag um heiminnn þar sem þeir breiða út sinn boðskap með garni og sýna okkur að í raun erum við öll tengd í gegnum garnið.

Um myndina

  • Flokkur: Heimildamynd
  • Frumsýnd: 9. september, 2016, Bíó Paradís
  • Frumsýnd erlendis: 2. febrúar, 2016, Göteborg Film Festival
  • Lengd: 76 mín.
  • Tungumál: Enska, Íslenska, Sænska
  • Titill: Garn

Fleiri

Aðstandendur og starfslið

Fyrirtæki

Þátttaka á hátíðum

  • Göteborg Film Festival, 2016
  • South by Southwest, 2016
  • Love & Anarchy – Helsinki International Film Festival, 2016
  • Galway Film Fleadh, Galway, Írland, 2016
  • Newport Beach Film Festival, Kalifornía, Bandaríkin, 2016
  • Skjaldborg, 2016
  • Vancouver International Film Festival, 2016
  • Port Townsend Film Festival, Washington, Bandaríkjunum, 2016
  • Milwaukee Film Festival, 2016
  • Nordisk Panorama Film Festival, Malmö, Svíþjóð, 2016
  • SXSW Film Festival, 2016

Sjá ennþá meira hér: http://yarnfilm.com