You are here :   sida
Greinasafnið


Ritvelli fram haldið

 

 

25
Ritvallarfundurinn í Faktorý s.l. þriðjudag tókst glimrandi vel! Ákveðið hefur verið að halda annan slíkan fund í lok nóvember (en á öðrum og hentugri samkomustað) og þróa hugmyndina áfram.
Ritvöllur er vettvangur fyrir umræðu um hugmyndir og handrit. Hann er opinn WIFT-félögum, bæði handritshöfundum og þeim sem reynslu hafa af þróun kvikmynda- og sjónvarpsverkefna og eru óhræddar við að leggja orð í belg og verða öðrum að liði.

Síðast stigu fjórir höfundar fram og kynntu handritin sem þær eru að vinna að um þessar mundir -- Dögg Mósesdóttir, Katrín Brynja Valdimarsdóttir, Vera Sölvadóttir og Anna Th. Rögnvaldsdóttir -- og fengu þær margvíslegar tillögur og ábendingar (og móralskan stuðning) frá áheyrendum. Ef þú hefur áhuga á að kynna þitt verkefni á næsta fundi skaltu hafa samband við umræðustjórnandann (anndia@this.is) eða formann WIFT (doggmo@yahoo.com). Ef þú vilt bara ræða málin og fá frekari upplýsingar skaltu hringja í Önnu í síma 777 3343.

Athygli er vakin á því að það er ekki gerð krafa um að höfundur sé með pottþétt verkefni í höndum og "pitchi"! Það er um að gera að koma með verkefni sem eru ennþá að reyna að koma undir sig fótunum (eru t.d. á hugmynda- og efnislýsingarstigi) og prófa hugmyndirnar á áheyrendunum. Áheyrendur á Ritvelli hafa alltaf eitthvað gott til málanna að leggja og bara bíða eftir að vera virkjaðir!

Efnisflokkar: Fréttir, Félagsstarf
Deila:
E-mail | Linkur |

Tengdar greinar

Hvaðan koma hin prósentin? Málþing WIFT og RIFF um fjármögnunarferli kvikmynda á Íslandi Norræna húsinu 24. september ...