You are here :   sida
Greinasafnið


RIFF auglýsir eftir íslenskum kvikmyndum

 

 

08
Skipuleggjendur Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík (RIFF) auglýsa eftir íslenskum kvikmyndum til sýningar á hátíðinni. RIFF verður haldin í 9. sinn dagna 27. september til 7. október, 2012.

Fram kemur í tilkynningu að dagkrárstýring fyrir RIFF 2012 sé nú í fullum gangi og hátíðin auglýsi sérstaklega eftir íslenskum kvikmyndum til sýningar á hátíðinni. Það eigi jafnt við um leiknar myndir í fullri lengd, heimildarmyndir og stuttmyndir.

„Íslenskar myndir eru jafnan með aðsóknarmesta dagskrárefni RIFF og á það ekki síst við um stuttmyndadagskrána, en þar komast oftast færri að en vilja. Þá koma fjölmargir erlendir kaupendur, dreifingaraðilar og dagskrárstjórar á hátíðina gagngert til að kynna sér nýtt og áhugavert efni frá Íslandi.

Opnað hefur verið fyrir innsendingar og áhugasömum er bent á að fara á heimasíðu RIFF og skrá þar mynd sína inn. Smelltu á skráningarhlekk hér.
Innsendingarfrestur er til 15. júlí.

Nánari upplýsingar fást með því að senda póst á: program@riff.is.
Einnig er hægt að hafa beint samband við Dóru Einarsdóttur, verkefnastjóra hátíðarinnar í síma: 411 7055
Efnisflokkar: Fréttir
Deila:
E-mail | Linkur |

Tengdar greinar

Dögg Mósesdóttir er nýr formaður Dögg Mósesdóttir var kjörin nýr formaður WIFT á aðalfundi félagsins þann 22. maí, 20...
Stuttmyndir, tónlist og fiskisúpa Þriðja Northern Wave kvikmyndahátíðin fer fram í Grundarfirði fyrstu helgina í mars, 5 – 7 mars n&...