You are here :   sida
Greinasafnið


Dögg Mósesdóttir er nýr formaður

 

 

07
Dögg Mósesdóttir var kjörin nýr formaður WIFT á aðalfundi félagsins þann 22. maí, 2011.

Dögg er án efa þekktust meðal WIFT kvenna fyrir frumkvöðlastarfið í tengslum við kvikmyndahátíðina Northern Wave, sem haldin hefur verið í Grundarfirði. En hún er stofnandi hátíðarinnar og aðaldrifsprauta. En Dögg hefur unnið sem starfsmannastjóri Súfistans í Reykjavík, sem stjórnandi dreifingardeildar framleiðslufyrirtækisins og kvikmyndaskólans C.E.C.C.- Grup cinema art í Barcelona, sem handritshöfundur, leikstjóri og klippari í fjölmörgum auglýsinga og kvikmyndaverkum hérlendis sem erlendis. Dögg vinnur nú um stundir sem klippari hjá SkjáEinum.

Dögg hefur verið skiptinemi í Equador og lauk diploma í kvikmyndaleikstjórn í C.e.c.c. Barcelona. Mynd hennar "Hús LIFFæRANNA", sem byggð er á Sögu hana börnum eftir Svövu Jakobsdóttur var valin besta nemendamyndin á CUSCO, International short film festival. Á meðan á námi stóð hlaut Dögg bæði nemenda og kennaraverðlaun fyrir verk sín.

Dögg talar íslensku, spænsku, ensku, katalónsku, dönsku og þýsku. Vinnsluforrit eins og Final Cut Pro, After Effects, Photoshop leika í höndum hennar. Hún tekur að sér leikstjórn, handritagerð, aðstoðarleikstjórn, skriftuvinnu, klippingar og framleiðslu.

Efnisflokkar: Fréttir, Félagsstarf
Deila:
E-mail | Linkur |

Tengdar greinar

Sjaldséðar stiklur eftir konur WIFT samtökin á Íslandi (Women in Film and Television) standa fyrir bíósýningu með myndum félagskve...
Aðalfundur WIFT Aðalfundur WIFT var haldinn sunnudagskvöldið 22. maí síðastliðinn á Hressó í Austurstræt...