Aðalfundur WIFT var haldinn sunnudagskvöldið 22. maí síðastliðinn á Hressó í Austurstræti.
Á fundinum fóru fram venjubundin aðalfundastörf, en hann var illa sóttur, eins og aðrir félagsfundir WIFT á umliðnum misserum. Í greinargerð fráfarandi formanns, Maríönnu Friðjónsdóttur kom m.a. fram:
- að fráfarandi stjórn tók við á árinu 2008 og hélt lengi framan af stjórnarfundi aðra hvora viku.
- að sett var upp ný vefsíða fyrir félagið (án endurgjalds) og félagaskrá tekin í gegn
- að leitað var afslátta fyrir félagskonur og er þá að finna á vefsíðunni
- að haldnir voru nokkrir félagsfundir, sem oftar en ekki voru sóttir af 3 til 4 félagskonum auk stjórnarinnar
- að efnt var til hittings með afsláttum á drykkjum fyrsta fimmtudag í mánuði um skeið
- að stofnaðar voru starfsnefndir á tímabilinu og þeim skipaðir formenn, en nefndirnar liðu út af
- að reynt var að halda myndakvöld með afspyrnu lélegum árangri hvað mætingu varðar
- að félagsgjöld voru felld niður skv. ákvörðun stjórnar þegar kreppan skall á og er því félagið ekki beysið fjárhagslega - fyrir þann tíma hafði einungis brotabrot félagskvenna staðið í skilum með félagsgjöld að öllu jöfnu
- að formaðurinn tók virkan þátt í nefnda og hópastarfi með öðrum aðildarfélögum kvikmyndagerðarmanna í tengslum við niðurskurði fjárlaga til kvikmyndagerðar og umfjöllun um þjónustusamning RÚV við innlenda framleiðendur
- að Silju Hauksdóttur voru þökkuð frábær störf hennar í nefnd iðnaðar- og menntamálaráðuneytis þar sem WIFT fékk fulltrúa í vinnu við gagngera skoðun á vægi kvikmyndagerðar fyrir íslenskt samfélag.
Á aðalfundinum var ákveðið að hefja innheimtu félagsgjalda á ný og voru þau ákveðin kr. 2.000 á ári. Samþykkt var tillaga um að innheimta félagsgjöldin í tveimur hlutum og mun nýr gjaldkeri setja innheimtu í ferli.
Á fundinum var kosin ný stjórn og nýr formaður. Dögg Mósesdóttir bauð sig fram til forystu og að auki voru kosnir 4 aðalstjórnendur og 2 í varastjórn.
Nýja stjórn er að finna hér.
Nánari upplýsingar um
Dögg Mósesdóttur er að finna hér.