|
|
Sjaldséðar stiklur eftir konur
WIFT samtökin á Íslandi (Women in Film and Television) standa fyrir bíósýningu með myndum félagskvenna á kvennafrídaginn 19. júní næstkomandi í Bíó Paradís klukkan 20.00. Yfirskrift sýningarinnar er "Sjaldséðar stiklur eftir konur" og verða sýnda fernar stuttmyndir og ein heimildarmynd en myndirnar eru nýjar og eiga það sameiginlegt að vera hvergi í sýningu á landinu sem stendur.
Í sýningu verða stuttmyndirnar "Kría" eftir Dögg Mósesdóttur, "Heart to heart" eftir Veru Sölvadóttur, "Freyja" eftir Marsibil Sæmundsdóttur, "Clean" eftir Ísold Uggadóttur (Edduverðlaunamynd 2011) og heimildarmyndin "Íslensk Alþýða" eftir Þórunni Hafstað.
Í lok sýningarinnar verður boðið upp á pallborðsumræður um þáttöku kvenna í kvikmyndagerð. Alþingi samþykkti á dögunum þingsályktun þar sem er að finna sérstakan lið sem kallaður er Konur og Kvikmyndagerð þar sem leitast á við að hvetja konur til frekari þátttöku í faginu. Pallborðið verður skipað af bæði konum og körlum úr ólíkum stéttum fagsins. Umræðunum verður stýrt af Krístínu Atladóttur menningarhagfræðingi og fyrrverandi framleiðanda. Aðgangseyrir er 850 krónur.