WIFT Íslandi, félag kvenna í kvikmyndum og sjónvarpi, verður sýningu á myndinni Ingaló eftir Ásdísi Thoroddsen þann 23. febrúar, klukkan 21:00 í Bíó Paradís.
Eftir sýninguna mun Ásdís segja frá gerð myndarinnar og svara spurningum úr sal.
,,Ingaló vinnur hjá föður sínum á trillunni, en feðginin eiga ekki skap saman. Eftir ball í þorpinu sem endar í slagsmálum milli þorpsbúa og áhafnar á aðkomu skipinu Matthildi ÍS 167, er Ingaló send til Reykjavíkur, en yngri bróðir hennar Sveinn, strýkur að heiman. Ingaló staldrar stutt við í Reykjavík og á sér ástarævintýri með manni á fertugsaldri, Vilhjálmi. Sveinn hafði komist í pláss á Matthildi og nú er Ingaló ráðin sem kokkur á bátinn. Það fiskast illa og að lokum er haldið til hafnar. Í heimahöfn búa flestir í áhöfninni í niðurníddri verbúð. Ingaló uppgötvar að eigandi Matthildar og ,,kóngurinn” í þorpinu er enginn annar en Vilhjálmur. Sjómennskan hafði ekki átt við Svein og hann varð fyrir stríðni um borð, en í verbúðinni verður hann fyrir algjörri niðurlægingu. Ingaló lendir í togstreitu, hún vill halda hlífiskildi yfir bróður sínum en dregst að Skúla, stýrimanninum á Matthildi. En Skúli hins vegar hefur augastað á fegurðardrottningu þorpsins. Villt partí í verbúðinni verður afdrifaríkt fyrir Inguló, Skúla og hitt fólkið. Skömmu síðar leggur Matthildur af stað í sína hinstu för…”
WIFT meðlimir (með framvísun félagsskírteinis) – Verð 500 krónur
Almennt – Verð 1500 krónur
Eldri borgarar/öryrkjar – 1000 krónur
ATHUGIÐ!
WIFT Ísland er ekki með posa. Það er hægt að greiða með seðlum eða með millifærslu í gegnum bankaapp eða AUR.
Facebook viðburður: https://fb.me/e/3TkIVwQJZ

