Fjórtán Íslendingar á áttunda ári eru viðfangsefni myndarinnar 7 ár, sem er innblásin af hinni víðfrægu þáttaröð Michael Apted – Up. Börnin eru hvaðanæva að af landinu, bæði úr sveit og borg. Öll börnin voru heimsótt og tekin tali á heimilum sínum sem og í skólanum.
Hvernig menning og samfélag endurspeglast í sínum yngstu þátttakendum er nokkuð fyrirferðarmikill þáttur í myndinni og málefni á borð við kynjahlutverk, trúarbrögð og stjórnmál eru tekin fyrir. Stærstum hluta myndarinnar er þó varið í að reyna að miðla persónuleika, vonum og væntingum hvers barns. Myndin er hugsuð sem fyrsta innslag í þáttaröð sem á að vara næstu áratugi. Ætlun hennar er að fá sömu viðmælendur í viðtal á sjö ára fresti og skrásetja uppvaxtar- og þroskasögu þeirra.
Um myndina
- Flokkur: Heimildamynd
- Lengd: 62 mín. 47 sek.
- Tungumál: Íslenska
Aðstandendur og starfslið
- Leikstjórn: Áslaug Einarsdóttir, Davíð Alexander Corno
- Handrit: Áslaug Einarsdóttir, Davíð Alexander Corno
- Stjórn kvikmyndatöku: Ómar Jabali
- Klipping: Áslaug Einarsdóttir, Davíð Alexander Corno
- Tónlist: Sveinbjörn Thorarensen
- Aðalframleiðandi: Anna María Karlsdóttir, Hrönn Kristinsdóttir
- Meðframleiðandi: Davíð Alexander Corno, Áslaug Einarsdóttir, Sveinbjörn Thorarensen
Fyrirtæki
- Framleiðslufyrirtæki: Ljósband ehf
- Meðframleiðslufyrirtæki: Október Films
- Styrkt af: Kvikmyndamiðstöð Íslands, Nýsköpunarsjóður námsmanna
Sýningar í sjónvarpi
- Ísland: RÚV, 2012