Fjórtán Íslendingar á áttunda ári eru viðfangsefni myndarinnar 7 ár, sem er innblásin af hinni víðfrægu þáttaröð Michael Apted – Up. Börnin eru hvaðanæva að af landinu, bæði úr sveit og borg. Öll börnin voru heimsótt og tekin tali á heimilum sínum sem og í skólanum.

Hvernig menning og samfélag endurspeglast í sínum yngstu þátttakendum er nokkuð fyrirferðarmikill þáttur í myndinni og málefni á borð við kynjahlutverk, trúarbrögð og stjórnmál eru tekin fyrir. Stærstum hluta myndarinnar er þó varið í að reyna að miðla persónuleika, vonum og væntingum hvers barns. Myndin er hugsuð sem fyrsta innslag í þáttaröð sem á að vara næstu áratugi. Ætlun hennar er að fá sömu viðmælendur í viðtal á sjö ára fresti og skrásetja uppvaxtar- og þroskasögu þeirra.

Um myndina

  • Flokkur: Heimildamynd
  • Lengd: 62 mín. 47 sek.
  • Tungumál: Íslenska

Aðstandendur og starfslið

Fyrirtæki

Sýningar í sjónvarpi

  • Ísland: RÚV, 2012