Fjallað er um þann sið, sem sjaldan er mikið rætt um, að fólk taki myndir af látnum ástvinum sínum á dánarbeðinu.
Heimildarmyndin Corpus Camera fjallar um tengsl fólks við ljósmyndir af látnu fólki. Á seinnihluta nítjándu aldar og fram eftir þeirri tuttugustu var algengt á Íslandi að taka ljósmyndir af látnum ættingum. Sérstaklega var algengt að taka myndir af látnum börnum. Kvikmyndagerðarmennirnir fóru á stúfana til að kanna myndeign fólks á slíkum myndum, hvort ljósmyndir af látnum væru teknar í dag og ekki síst hvað fólk hafði að segja um þessar myndir af látnum ættingjum sínum. Í myndinni segir frá hefð sem er ennþá stunduð út um allt land. Rætt er við fjölmarga einstaklinga sem á einlægan og tilfinningaríkan hátt lýsa sambandi sínu við þá látnu og hvaða hlutverki ljósmyndirnar þjóna. Þetta er hjartnæm mynd sem lætur engann ósnortinn.
Um myndina
- Flokkur: Heimildamynd
- Frumsýnd: 2. apríl, 1999
- Lengd: 57 mín.
- Tungumál: Íslenska
Aðstandendur og starfslið
- Leikstjórn: Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Sigurjón Baldur Hafsteinsson
- Handrit: Sigurjón Baldur Hafsteinsson, Hrafnhildur Gunnarsdóttir
- Stjórn kvikmyndatöku: Hrafnhildur Gunnarsdóttir
- Klipping: Hrafnhildur Gunnarsdóttir
- Tónlist: Jóhann Jóhannsson
- Aðalframleiðandi: Böðvar Bjarki Pétursson, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Sigurjón Baldur Hafsteinsson
Fyrirtæki
- Framleiðslufyrirtæki: 20 Geitur, Krumma Films ehf.
Þátttaka á hátíðum
- Edduverðlaunin / Edda Awards, 1999 – Verðlaun: Tilnenfd sem heimildarmynd ársins
Sjá meira hér:
www.krummafilms.com