Uppúr sjötugu fór Sigríður Níelsdóttir að taka upp og gefa út sína eigin tónlist beint úr stofunni heima. Á sjö árum urðu geislaplötur hennar 59 talsins, litlar fjársjóðskistur af sérviskulegum, grípandi tónsmíðum þar sem fléttast saman ólíkar hljóðuppsprettur; mjálm og korr gæludýra Sigríðar, ýmiss konar leikföng, eldhússlagverk og Casio-hljómborð. Áður en leið á löngu varð þessi einstaka tónlistar- og myndlistarkona dáð költ-fígúra meðal íslenskra tónlistarmanna, en nokkrir þeirra votta ómótstæðilegum lagstúfum þessarar sjarmerandi ömmu virðingu sína í myndinni með stuttum performönsum. Fulltrúar aðdáenda Sigríðar í myndinni eru: Hildur Guðnadóttir, Mugison, múm, Sing Fang, Mr. Silla og Kría Brekkan.
Amma Lo-fi er frumraun þriggja tónlistarmanna á kvikmyndasviðinu. Myndin var að mestu skotin á Super-8 og 16 mm filmu á sjö árum og fangar kreatívasta tímabilið í lífi Sigríðar Níelsdóttur. Á margan hátt minnir Sigríður á teiknimyndafígúru. Ljóðræn uppátæki á borð við það að fóstra vængbrotnar dúfur sem syngja fyrir hana í staðinn eða það að breyta rjómaþeytara í þyrlu, kalla á teiknaðar hreyfimyndir sem brúa óljóst bilið á milli einstaks ímyndunarafls Sigríðar og ljómandi óvenjulegri hversdagstilveru hennar. Amma Lo-fi er kvikmyndaður óður til stórkostlegrar tónlistarkonu og óviðjafnanlegs sköpunarkrafts hennar.
Um myndina
- Flokkur: Heimildamynd
- Frumsýnd: 30. mars, 2012, Bíó Paradís
- Frumsýnd erlendis: 5. nóvember, 2011, Cinemateket, Copanhagen
- Tegund: Tónlistarmynd
- Lengd: 62 mín.
- Tungumál: Íslenska, Danska
Aðstandendur og starfslið
- Leikstjórn: Orri Jónsson, Kristín Björk Kristjánsdóttir, Ingibjörg Birgisdóttir
- Handrit: Orri Jónsson, Kristín Björk Kristjánsdóttir, Ingibjörg Birgisdóttir
- Klipping: Ingibjörg Birgisdóttir, Orri Jónsson
- Tónlist: Sigríður Níelsdóttir
- Aðalframleiðandi: Sæmundur Norðfjörð
- Meðframleiðandi: Louise Höjgaard Johansen
Leikarar
- Aðalhlutverk: Sigríður Níelsdóttir (sem hún sjálf)
Fyrirtæki
- Framleiðslufyrirtæki: Republik Film Productions
- Meðframleiðslufyrirtæki: Killit Productions
- Styrkt af: Kvikmyndamiðstöð Íslands
Þátttaka á hátíðum
- Nordisk Panorama – Isländskt Retrospektiv, Malmö, 2015
- Scandinavian House NY, 2014
- Gothenburg International Film Festival, Sweden, 2013
- Nordic Lights Film Festival (Nordic Heritage Museum), Seattle, USA, 2013
- Edduverðlaunin / Edda Awards, 2013 – Verðlaun: Tilnefnd fyrir heimildamynd ársins.
- Helsinki International Film Festival, Finland, 2012
- Gimli Film Festival, Canada, 2012
- Nordisk Panorama, Shorts and Documentaries Film Festival, Finland, 2012
- REC Festival Internacional de Cinema de Tarragona, Tarragona, Spain, 2012
- Exposed Festival for First Films, Cologne, Germany, 2012
- Sheffield DOC/FEST, Sheffield, UK, 2012
- Open City Loncon Documentary Festival, UK, 2012
- Norwegian Short Film Festival, Grimstad, Norway, 2012
- Docaviv Film Festival, Israel, 2012
- IndieLisboa Portugal, International Independent Film Festival, Portugal, 2012
- Festival Air d’Islande, France, 2012
- Bafici Festival, Buenos Aires, 2012
- Rotterdam International Film Festival, Netherlands, 2012
- Ambulante Mexioco Documentary Travelling Film Festival, 2012
- MoMa/Documentary Fortnight, New York, 2012
- South by Southwest, Texas, USA, 2012
- Flatpack Festival, UK, 2012
- CPH: DOX, 2011 – Verðlaun: Besta alþjóðlega tónlistarmyndin.
Sýningar í sjónvarpi
- Ísland: RÚV, 2012
Sýningar í kvikmyndahúsum
- Ísland: Bíó Paradís, 2012