Heimildarmyndin Höggið fjallar um aðdraganda, atburðarás og eftirmál hörmulegs sjóslyss á jólanótt árið 1986 þegar íslenskt flutningaskip, M/S Suðurland, fórst norður í Atlandshafi. Um borð voru 11 manns en þeir fimm sem lifðu slysið af þurftu að hafast við í rifnum gúmbjörgunarbát hálffullum af sjó í einar 14 klukkustundir þar til hjálp barst. Margar þjóðir tóku þátt í björguninni en Danir náðu með naumundum að bjarga mönnunum. Hin opinbera skýring á orsökum slyssins var lélegur frágangur síldartunna en ekki hefur þrátt fyrir það tekist að útiloka sögusagnir um að hugsanlega hafi kafbátur átt þátt í því að Suðurlandið fórst.
Um myndina
- Flokkur: Heimildamynd
- Frumsýnd: 28. desember, 2014
- Lengd: 75 mín.
- Tungumál: Íslenska
Aðstandendur og starfslið
- Leikstjórn: Ágústa Einarsdóttir
- Handrit: Ágústa Einarsdóttir, Helena Einarsdóttir, Birna Paulina Einarsdóttir
- Stjórn kvikmyndatöku: Björgvin Helgi Möller Pálsson
- Klipping: Ágústa Einarsdóttir
- Tónlist: Birgir Hilmarsson
- Aðalframleiðandi: Birna Paulina Einarsdóttir, Helena Einarsdóttir, Ágústa Einarsdóttir
Leikarar
- Aukahlutverk:
Emil Freyr Freysson
Hólmsteinn Brekkan
Kristján Sveinsson
Ingólfur Arnar Björnsson
Þorsteinn Gunnar Bjarnason
Sigurður Guðmann Diðriksson
Magnús Guðfinnsson
Bjartur Guðmundsson
Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson
Björn Karlsson
Ervin Shala
Fyrirtæki
- Framleiðslufyrirtæki: Elf Films
- Styrkt af: Kvikmyndamiðstöð Íslands
Þátttaka á hátíðum
- Edduverðlaunin / Edda Awards, 2015 – Verðlaun: Heimildarmynd ársins.
- Nordische Filmtage Lübeck, 2015