Skömmu eftir hernámið í seinni heimsstyrjöldinni fór allt á annan endann í íslensku samfélagi vegna samskipta kvenna við setuliðið. „Ástandsstúlkur“ voru fordæmdar í dagblöðum og ráðamenn þjóðarinnar töluðu um að lauslæti og skækjulifnaður ógnaði íslensku þjóðerni og þjóðarsóma. Í kjölfarið var gripið til fordæmalausra mannréttindabrota; sjálfræðis- og frlesissviptinga ungra kvenna undir yfirskyni björgunar.
Heimildamyndin Stúlkurnar á Kleppjárnsreykjum: Lauslæti og landráð sviptir hulunni af myrkum kafla sögunnar sem hefur legið í þagnargildi í áratugi.
Um myndina
- Flokkur: Heimildamynd
- Frumsýnd: 8. október, 2015
- Lengd: 65 mín.
- Tungumál: Íslenska
Aðstandendur og starfslið
- Leikstjórn: Alma Ómarsdóttir
- Stjórn kvikmyndatöku: Ingi R. Ingason
- Tónlist: Karl Olgeirsson
Þátttaka á hátíðum
- Skjaldborg, 2015