Hvað er svona merkilegt við það fjallar um skrautlega kvennabaráttu níunda og tíunda áratugarins. Myndin rekur sögu Kvennalistans og annara kvenfrelsishræringa á gróskumiklum tímum og hvað gerist þegar grasrótarsamtök storma inn í hið skipulagða kerfi. Við lendum þó árið 2015 eftir nokkur ferðalög m.a. til Afghanistan.
Viðmælendur eru flestir þjóðþekktir fyrir störf sín á ýmsum vettvangi. Meðal annara eru þar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Ragnhildur Gísladóttir, Salome Þorkelsdóttir, Edda Björgvinsdóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir, Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Guðrún Agnarsdóttir og margar fleiri kempur.
Um myndina
- Flokkur: Heimildamynd
- Frumsýnd: 23. október, 2015, Bíó Paradís
- Lengd: 73 mín.
- Tungumál: Íslenska
Aðstandendur og starfslið
- Leikstjórn: Halla Kristín Einarsdóttir
- Handrit: Halla Kristín Einarsdóttir
- Stjórn kvikmyndatöku: Arnar Þórisson, Hrafnhildur Gunnarsdóttir
- Klipping: Stefanía Thors
- Tónlist: Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir
- Aðalframleiðandi: Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Fyrirtæki
- Framleiðslufyrirtæki: Krumma Films ehf.
- Styrkt af: Kvikmyndamiðstöð Íslands
Þátttaka á hátíðum
- Edduverðlaunin / Edda Awards, 2016 – Verðlaun: Heimildarmynd ársins.
- Skjaldborg, 2015 – Verðlaun: Vann Einarinn – áhorfendaverðlaunin fyrir bestu mynd.
- Nordisk Panorama, 2015
Meira um myndina hér: http://krummafilms.com/portfolio-item/hvad-er-svona-merkilegt-vid-thad/