Ferðin heim – smásögur úr Árneshreppi á Ströndum” er íslensk heimildarmynd um mannlífið og náttúruna í þessum fámennasta og afskekktasta hreppi Íslands. Í myndinni leiðir María Guðmundsdóttir, ljósmyndari, sem alin er upp í Árneshreppi, áhorfendur inn í daglegt líf og störf fólksins í hreppnum. María kvikmyndaði meginhluta myndarinnar á árunum 2009 – 2014. Vigdís Grímsdóttir, rithöfundur, tók flest viðtölin við hreppsbúa.
María Guðmundsdóttir, ljósmyndari, ólst upp í Árneshreppi á Ströndum. Hún fluttist þangað ung að árum og bjó þar fram á fermingaraldur. Hún hefur miklar tilfinningar til náttúrunnar og fólksins í þessum afskekktasta og fámennasta hreppi landsins. María kvikmynda hreppsbúa yfir 5 ára tímabil, daglegu lífi og kynntist náið hugðarefnum þess. Vigdís Grímsdóttir, rithöfundur, slóst í för með Maríu og tók viðtöl við hreppsbúa. Í heimildarmyndarmyndinni kynnumst við meðal annars Evu og Ásbirni sem staðsett eru á Hótel Djúpavík, alhúð heimamanna við æðarfuglinn, alræmdum álagablettum og sögum af galdrabrennum, förum á grásleppu með Gunnsteini, fyrrverandi oddvita, og lítum inn í einn klúbbanna sem haldnir eru í svartasta skammdeginu. Réttirnar á haustinn er ákveðinn hápunktur í samfélagslífi Árneshreppsbúa og þar taka allir til hendinni. Einnig kynnumst við Sigursteini sem skrifað hefur dagbækur sínar af alúð allt frá árinu 1963.
Um myndina
- Flokkur: Heimildamynd
- Lengd: 53 mín.
- Tungumál: Íslenska
Aðstandendur og starfslið
- Leikstjórn: Anna Dís Ólafsdóttir
- Handrit: Anna Dís Ólafsdóttir, Vigdís Grímsdóttir
- Stjórn kvikmyndatöku: María Guðmundsdóttir
- Klipping: Konráð Gylfason, Jóhann Sigfússon, Garðar Garðarsson, Marteinn Ibsen
- Tónlist: Audio Network
- Aðalframleiðandi: María Guðmundsdóttir, Anna Dís Ólafsdóttir, Jóhann Sigfússon
Fyrirtæki
- Framleiðslufyrirtæki: Profilm, Bláus Art
- Styrkt af: Kvikmyndamiðstöð Íslands, Menningarráð Vestfjarða, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Flugfélagið Ernir, Suzuki umboðið
Sjá meira hér: http://www.profilm.is/the-journey-home/