Saga um tilvistarkreppu, sköpunarkraft, náttúru og vísindin á bak við tengslin við okkar innri mann. InnSæi fer með áhorfendur í ferðalag um heiminn til þess að læra listina að tengja inn á við í heimi hraða og áreitis.
Nýjir tímar kalla á breytt hugarfar og meðvitaða skynjun. InnSæi býður áhorfendum í ferðalag inn í hulinn heim innra með hverju og einu okkar sem lætur engan ósnortinn.
Heimurinn er breytast hraðar en nokkru sinni fyrr og nýjir tímar kalla á nýja hugsun.
65% af skólakrökkum í dag eiga eftir að vinna störf í framtíðinni sem hafa ekki verið fundin upp. Talið er að þunglyndi verði ein helsta orsök örorku árið 2020. Kulnun í starfi, upplýsingaáreiti og ofbeldi eru orðinn daglegur hluti af menningu okkar, afþreyingarefni og fjölmiðlaumfjöllun, á meðan að ósnortin náttúra er orðin að fjarlægum draumi fyrir fólk víða um heim. Hvernig hafa þessir þættir áhrif á líf okkar?
Í bland við persónulega reynslu sögumannsins Hrundar Gunnsteinsdóttur, koma fram í myndinni heimsþekktir leiðtogar og hugsuðir á sviði lista, vísinda og fræða sem leiða okkur inn í margræðan heim InnSæis: Heim endalausra möguleika, sjálfsþekkingar, samkenndar og ímyndunarafls. – Veröld sem við erum að missa tengingu við í hraða og áreiti nútímasamfélagsins.
Á ferðalagi leikstjóranna Kristínar og Hrundar, fylgjast þær með skólabörnum í Bretlandi sem er kennt með hjálp taugalíffræði og núvitundar að takast á við upplýsingaflæði, stress og auknar kröfur sem gerðar eru til þeirra. Reynsla barnanna sýnir þeim að InnSæi er lykillinn að þeim sköpunarkrafti sem við þurfum á að halda til að dafna og takast á við nútímasamfélag.
Um myndina
- Flokkur: Heimildamynd
- Frumsýnd erlendis: 29. júní, 2016, Berlín
- Lengd: 90 mín.
Aðstandendur og starfslið
- Leikstjórn: Kristín Ólafsdóttir, Hrund Gunnsteinsdóttir
- Handrit: Hrund Gunnsteinsdóttir
- Stjórn kvikmyndatöku: Faye, Bergsteinn Björgúlfsson
- Klipping: Sotira Kyriacou, Nick Fenton
- Tónlist: Úlfur Eldjárn
- Aðalframleiðandi: Kristín Ólafsdóttir
- Meðframleiðandi: Sandra Tabares-Duque, Al Morrow, Heather Millard
Fyrirtæki
- Framleiðslufyrirtæki: Klikk Productions
- Í samvinnu við: RÚV
- Meðframleiðslufyrirtæki: Met Film Production
- Styrkt af: Kvikmyndamiðstöð Íslands
Þátttaka á hátíðum
- Galway Film Fleadh, Galway, Írland, 2016