VERKFERLAR OG STEFNUR WIFT/KIKS VARÐANDI TILKYNNINGAR

SMELLTU HÉR TIL AÐ FYLLA ÚT TILKYNNINGAFORM.

Til að tryggja faglega, örugga og réttláta meðhöndlun kvartana innan WIFT/KIKS hafa eftirfarandi verkferlar og stefnur verið settar upp.

1. Grunnreglur og stefna

Skýrar reglur

WIFT/KIKS skulu hafa skriflega stefnu sem skilgreinir:

  • Óásættanlega hegðun (t.d. kynferðislega áreitni, hugverkastuld o.fl.).
    • Verkferla við móttöku og meðhöndlun tilkynninga.
    • Mögulegar afleiðingar brota.

Trúnaður

  • Allar tilkynningar verða meðhöndlaðar af algjörum trúnaði.
  • Aðeins viðeigandi aðilar hafa aðgang að upplýsingum um málið.

Réttlát málsmeðferð

  • Bæði sá sem tilkynnir og sá sem málið beinist að skulu fá sanngjarna meðferð og tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri.

2. Stefna fyrir tiltekin málasvið

Kynferðisleg áreitni og ofbeldi

  • Kynferðisleg áreitni er með öllu óheimil innan samtakanna og á viðburðum þeirra.
  • Sérhver tilkynning um slíka hegðun verður rannsökuð tafarlaust.
  • Félagsmaður sem sannarlega hefur brotið af sér verður vísað úr samtökunum og mál tilkynnt til yfirvalda ef þörf krefur.
  • Ef gerandi er utan samtaka verða viðeigandi yfirvöld og/eða vinnustaður geranda upplýst um málið.

Hugverkastuldur og réttindi

  • WIFT/KIKS tekur hugverkastuld mjög alvarlega og hefur skuldbundið sig til að vernda hugverk félagsmanna.
  • Sérhver tilkynning um hugverkastuld verður rannsökuð í samræmi við verkferla samtakanna.
  • Ágreiningsmál verða leyst með samningaviðræðum, sáttameðferð eða vísað til lögfræðinga ef nauðsyn krefur.

Einelti og valdníðsla

  • WIFT/KIKS skuldbindur sig til að skapa umhverfi þar sem einelti eða valdníðsla þrífst ekki.
  • Tilkynningar um einelti verða teknar alvarlega og leystar í samræmi við verkferla samtakanna.
  • Ef gerandi er utan samtaka verður reynt að miðla málinu með aðkomu utanaðkomandi ráðgjafa eða með tilkynningu til viðeigandi aðila.

Misnotkun á úrræðum samtakanna

  • Félagsmönnum er óheimilt að nýta úrræði samtakanna í eigin þágu án heimildar.
  • Tilkynningar um slíka misnotkun verða rannsakaðar og viðeigandi viðbrögð gripin til.

Mismunun og misrétti

  • WIFT/KIKS leggur áherslu á jafnrétti og fjölbreytni innan samtakanna.
  • Sérhver tilkynning um mismunun verður rannsökuð og afleiðingar ákveðnar í samræmi við alvarleika málsins.
  • Ef gerandi er utan samtaka verður málið sent viðeigandi yfirvöldum eða stofnunum til meðhöndlunar.

Launamisrétti

  • WIFT/KIKS hefur skuldbundið sig til að berjast gegn launamisrétti kynjanna.
  • Tilkynningar um launamisrétti verða rannsakaðar og leystar í samráði við hlutaðeigandi aðila.
  • Ef málið tengist utanaðkomandi samstarfsaðila verður það sent viðeigandi yfirvöldum eða vinnustað til úrlausnar.

Vandamál tengd samstarfsverkefnum

  • Félagsmönnum ber að virða ábyrgð sína og hlutverk í samstarfsverkefnum.
  • Sérhver ágreiningur verður leystur með sáttamiðlun eða með tilstuðlan utanaðkomandi aðila ef nauðsyn krefur.

Netáreitni og samskipti

  • Félagsmönnum ber að sýna virðingu í samskiptum sínum, þar með talið á netmiðlum samtakanna.
  • Tilkynningar um netáreitni verða rannsakaðar og viðeigandi viðbrögð gripin til.
  • Ef gerandi er utan samtaka verður málið sent til yfirvalda eða stjórnanda viðkomandi netsamfélags.

3. Móttaka kvörtunar

Tengiliður

  • Trúnaður skal vera innan stjórnar WIFT/KIKS í málsmeðferðum tilkynninga.
  • Skipa skal sérstakan trúnaðarmann innan WIFT/KIKS sem tekur á móti tilkynningum og ábendingum í gegnum sér netfang, td trunadur@wift.is
  • Trúnaðarmaður í samstarfi við formann tekur ákvörðun um hvort málið komi á borð stjórnar til rannsóknar eða fari til fagaðila (löggæslu, sálfræðings etc)

Kvörtunarform

  • Eyðublað skal liggja fyrir bæði rafrænt og á pappír. Það skal innihalda:
    • Dagsetningu og staðsetningu atviksins.
    • Lýsingu á atvikinu.
    • Upplýsingar um möguleg vitni.
    • Óskir kvartanda um lausn málsins.

Aðgangur

  • Upplýsingar um hvernig og hvar má leggja fram ábendingu eða tilkynningu skulu vera aðgengilegar öllum félagsmeðlimum.

4. Rannsóknarferlið

Staðfesting

  • Félagsmaður fær staðfestingu á móttöku tilkynningar innan 2-5 virkra daga.

Rannsókn

  • Trúnaðarfulltrúi eða rannsóknarteymi skal:
    • Tala við félagsmann og skrá nákvæmar upplýsingar um atvikið.
    • Tala við vitni (ef einhver eru).
    • Safna sönnunargögnum, svo sem tölvupóstum, skjölum eða skjáskotum.

Ráðgjöf

  • Í flóknum málum skal leita til lögfræðings eða sérfræðings, sérstaklega ef málið snýst um kynferðislega áreitni eða önnur lögbrot.
  • Ef gerandi er utan samtaka verður haft samband við viðeigandi aðila, svo sem yfirvöld eða vinnustað geranda.

5. Ákvarðanataka

Mat á niðurstöðum

  • Stjórn WIFT/KIKS metur niðurstöður rannsóknar.

Viðeigandi viðbrögð

  • Minni háttar brot: Viðvörun eða leiðbeinandi samtal.
  • Alvarleg brot:
    • Brottrekstur úr samtökunum.
    • Tilkynning til lögreglu eða annarra yfirvalda.
    • Vísa málinu til óháðs sáttasemjara.
  • Ef gerandi er utan samtaka:
    • Málið verður sent viðeigandi yfirvöldum, stofnunum eða vinnustað til úrvinnslu.
    • Vísa málinu til óháðs sáttasemjara.

Sáttameðferð

  • Ef báðir aðilar eru samþykkir má leita sátta með aðstoð óháðs aðila.
  • Mikilvægt er að tryggja hlutleysi sáttamiðlara og jafnt tillit til sjónarmiða beggja aðila.
  • Sáttameðferðin skal byggjast á skýrum og vel skilgreindum ferlum til að forðast frekari ágreining.
  • Ef niðurstaðan úr sáttameðferð er ekki viðunandi fyrir annan eða báða aðila, skal stjórn tryggja að málið haldi áfram í samræmi við verkferla fyrir óleyst mál.

Ef ekki næst sátt

Lokamat á stöðunni:

  • Stjórnin metur allar fyrirliggjandi upplýsingar á hlutlausan hátt.
  • Áhersla er lögð á að greina mögulega lausn og meta hvort frekari rannsóknir séu nauðsynlegar.

Samráð við utanaðkomandi aðila:

  • Ef málið krefst sérhæfðrar meðferðar er það vísað til lögfræðinga eða sérfræðinga með reynslu af sambærilegum málum.
  • Hlutleysi tryggt með því að velja óháðan aðila.

Tilkynning til yfirvalda:

  • Ef málið inniheldur mögulegt lögbrot er það tafarlaust tilkynnt viðeigandi yfirvöldum.
  • Stjórnin styður við ferlið með því að veita öll nauðsynleg gögn.

Samskipti við aðila:

  • Báðir aðilar fá skýra og reglulega uppfærslu um framvindu málsins.
  • Áhersla lögð á hlutlaust og faglegt orðalag.

Endanleg niðurstaða:

  • Ef ekki tekst að finna lausn í sátt eða lögfræðilegum úrskurði, mun stjórn staðfesta og tilkynna endanlega niðurstöðu málsins.
  • Þessi niðurstaða skal byggjast á skýrum gögnum og hlutlægri úttekt.

Fylgni eftir málalok:

  • Stjórnin metur hvort kerfisbreytingar eða forvarnir séu nauðsynlegar til að koma í veg fyrir svipuð mál í framtíðinni.
  • Félagsmeðlimir eru upplýstir (ef við á) um breytingar á verkferlum eða stefnu.

Kostnaður og greiðslur

  • Sérhver ákvörðun um greiðsluskyldu skal vera skýr og byggð á eðli málsins.
  • Félagsmaður og einnig gerandi skulu vera upplýstir um mögulegan kostnað við upphaf rannsóknar eða úrvinnslu máls.
  • Ef fjárskortur kemur í veg fyrir að málið fái viðeigandi úrvinnslu innan samtakanna, skal leita eftir styrkjum eða fjárstuðningi frá opinberum stofnunum eða sjálfstæðum styrktarsjóðum.

Greiðsluskylda samtakanna:

  • WIFT/KIKS mun standa straum af kostnaði ef málið tengist beinni starfsemi eða verkefnum samtakanna.

Deilt greiðsluábyrgð:

  • Ef málið tengist bæði félagsmanni og geranda á jafnréttisgrundvelli, getur verið gerð krafa um að báðir aðilar taki þátt í kostnaði.

Greiðsla af utanaðkomandi aðilum:

  • Ef málið tengist ekki starfsemi samtakanna beint, verður málið vísað til viðeigandi aðila eða yfirvalda sem bera ábyrgð á greiðslu kostnaðar.

6. Eftirfylgni og forvarnir

Eftirfylgni

  • Trúnaðarfulltrúi fylgist með stöðu málsins og tryggir að lausnin hafi verið fullnægjandi.

Fræðsla
WIFT/KIKS vinni að því að koma á stöðluðum verkferlum innan kvikmyndageirans hvað varðar kynbundið ofbeldi og kynferðislega áreitni í samstarfi við framleiðslufyrirtæki og óháða aðila

  • Skipuleggja reglulega fræðslufundi fyrir félagsmeðlimi um málefni eins og:
    • Hugverkastuld.
    • Kynferðislega áreitni
    • Launamisrétti ofl.

Úrræði
WIFT/KIKS skulu tryggja félagsmeðlimum aðgang að:

  • Sálfræðiaðstoð.
  • Lögfræðiráðgjöf ef nauðsyn krefur.

7. Regluleg endurskoðun

Verkferlar og stefna skulu vera metin og uppfærð árlega í samræmi við reynslu og gildandi lög.


Scroll to Top