Tvíhliða verkefni sem sameinar myndlist og kvikmyndir. Það samanstendur af 53 mínútna kvikmynd og fjölskjáa innsetningu sem fylgir eftir farandmyndlistarsýningu. Innblásturinn eru verk Hreins Friðfinnssonar og myndin rannsakar hið óræða eðli tíma og minnis.

Vísindamaðurinn Aika vinnur á rannsóknarstofu Tímans í Finnlandi. Hún afhjúpar baksögu tilraunar sem fól í sér að tvíburabræður voru aðskildir í barnæsku og látnir vaxa úr grasi á ólíkum stöðum. Tíminn leiddi í ljós að þeir eltust með mismunandi hætti vegna ólíkrar afstöðu þeirra gagnvart þyngdaraflinu; yngri bróðirinn býr á fjalllendu Íslandi en sá eldri býr á flatlendinu í Hollandi.

Um myndina

  • Flokkur: Heimildamynd
  • Frumsýnd: 5. apríl, 2014
  • Frumsýnd erlendis: 1. febrúar, 2014, Docpoint – Helsinki Documentary Film Festival
  • Tegund: Tilraunamynd
  • Lengd: 60 mín.
  • Tungumál: Finnska, Íslenska, Enska
  • Titill: æ ofaní æ

Aðstandendur og starfslið

Leikarar

Fyrirtæki

Þátttaka á hátíðum

  • Göteborg Film Festival, 2015
  • Docpoint – Helsinki Documentary Film Festival, 2014