Allar mættar er íslensk heimildamynd sem byggir á íslenskum raunveruleika. Hún segir frá Ástbjörgu Gunnarsdóttur sem hefur rekið sama fimleikahópinn í 50 ár. Í áranna rás hefur hún myndað sérstakt og náið samband við konurnar í hópnum. Sumar þeirra hafa gengið til liðs við sérstakan sýningarhóp sem hefur sýnt út um allan heim, allt frá Gautaborg til Kanarí.
Þessi heimildamynd lýsir ævi Ástbjargar, starfi og konunum í þessum einstaka fimleikahóp. Í henni kynnumst við starfsaðferðum og lífsspeki hennar, eðli vináttunnar í hópnum og fáum að sjá brot úr verkum danshópsins svo eitthvað sé nefnt.
Um myndina
- Flokkur: Heimildamynd
- Lengd: 32 mín.
- Tungumál: Íslenska
Aðstandendur og starfslið
- Leikstjórn: María Guðmundsdóttir
- Handrit: Vigdís Grímsdóttir
- Stjórn kvikmyndatöku: María Guðmundsdóttir
- Klipping: Gunnar Konráðsson
- Tónlist: Arnar Guðjónsson
- Aðalframleiðandi: Anna Dís Ólafsdóttir
- Meðframleiðandi: María Guðmundsdóttir
Fyrirtæki
- Framleiðslufyrirtæki: Profilm
- Styrkt af: Kvikmyndamiðstöð Íslands