Börn til sölu er um mansal á stúlkubörnum í Kambódíu þar sem tugþúsundir ungra stúlkna eru árlegai seldar í þrælkunarvinnu, kynlífsánauð og vændi. Í þessari heimildarmynd er fylgst með lífi nokkurra slíkra stúlkna. Rætt er við stúlkur sem eru í kynlífsánauð, stúlkur sem tekist hefur að bjarga og hjálparstarfsmenn í Kambódíu.

Kabódíska þjóðin er enn að jafna sig eftir mikið blóðbað á seinni hluta síðustu aldar þar sem fjórðungur þjóðarinnar var tekinn af lífi. Innviðir samfélagsins, eins og heilbrigðis- og menntakerfi, eru laskaðir og spilling mikil. Fimmtungur þjóðarinnar er ólæs og sorglega lágt hlutfall barna gengur í skóla. Helmingur þjóðarinnar lifir undir fátæktarmörkum og fátækar fjölskyldur í afskekktum þorpum á landsbyggðinni eru berskjaldaðar fyrir mansalinu og meðal annarra er fylgst með einni slíkri.

Um myndina

  • Flokkur: Heimildamynd
  • Frumsýnd: 21. apríl, 2009
  • Lengd: 50 mín. 38 sek.
  • Tungumál: Enska, Íslenska
  • Titill: Börn til sölu

Aðstandendur og starfslið

Fyrirtæki