Kitty Von-Sometime er bresk listakona sem hefur verið búsett á Íslandi í átta ár. Hún er hvað þekktust fyrir ‘The Weird Girls Project’, sem er röð verka eða myndbandsþátta þar sem konur eru í forgrunni. Hver þáttur er einstakur og byggist upp ákveðinni hugmyndafræði. Kitty fær hóp kvenna með sér í hvern þátt en markmið verkanna er meðal annars að styrkja sjálfstraust og líkamsímynd kvenna og hvetja þær til að sleppa framan af sér beislinu. Heimildamyndin fylgir eftir Kitty í daglegu lífi og við vinnu á verkum sínum. Konurnar eru margar í lífi Kittyar, þær veita henni innblástur og verk hennar efla þær og styrkja á ólíkan máta. Útkoman er einstök.
Um myndina
- Flokkur: Heimildamynd
- Frumsýnd: 3. september, 2015, Bíó Paradís
- Frumsýnd erlendis: 19. september, 2015, Nordisk Panorama
- Lengd: 72 mín.
- Tungumál: Enska, Íslenska
Aðstandendur og starfslið
- Leikstjórn: Brynja Dögg Friðriksdóttir
- Handrit: Adrienne Grierson, Brynja Dögg Friðriksdóttir
- Stjórn kvikmyndatöku: Hrafn Garðarsson, Brynja Dögg Friðriksdóttir
- Klipping: Brynja Dögg Friðriksdóttir, Elísabet Ronaldsdóttir
- Tónlist: Sigríður Eyþórsdóttir (II), Eyþór Ingi Eyþórsson
- Aðalframleiðandi: Heather Millard
Fyrirtæki
- Framleiðslufyrirtæki: GoldHalo
- Meðframleiðslufyrirtæki: Goodminton, Compass Films
- Styrkt af: Kvikmyndamiðstöð Íslands
Þátttaka á hátíðum
- Mirgorod Film Festival, Poltava, Úkraína, 2016
- Dokfilm, Volda, Noregur, 2016
- Skjaldborg, 2015
- Nordisk Panorama, 2015