Á gistiheimilinu Fit í Njarðvík er rekið flóttamannahæli. Þar hafast við hælisleitendur frá ólíkum heimhornum sem hafa flúið heimalönd sín vegna stríðs, ofsókna, eða annarra hörmunga. Þeir koma frá Afghanistan, Írak, Íran, Rússlandi, Máritaníu, Súdan, Alsír o.s.frv. Margir hafa dvalið þar árum saman á með mál þeirra þvælast í kerfinu. Fylgst er með nokkrum einstaklingum af þeim 20 sem þar hafa dvalið lengur en í ár. Líf þeirra einkennist af örvæntingu og hræðslu, óvissu og reiði. Enginn veit sín örlög, þeir bíða eftir svörum frá íslenskum yfirvöldum um hvort þeir fái dvalarleyfi hér á landi, eða verði sendir til baka.

Um myndina

  • Flokkur: Heimildamynd
  • Frumsýnd: 13. mars, 2013
  • Lengd: 60 mín.
  • Tungumál: Enska, Íslenska
  • Titill: Fit Hostel

Aðstandendur og starfslið

Fyrirtæki

Þátttaka á hátíðum

  • Edduverðlaunin / Edda Awards, 2014 – Verðlaun: Tilnefnd fyrir heimildarmynd ársins.