Heimildarmyndin Höggið fjallar um aðdraganda, atburðarás og eftirmál hörmulegs sjóslyss á jólanótt árið 1986 þegar íslenskt flutningaskip, M/S Suðurland, fórst norður í Atlandshafi. Um borð voru 11 manns en þeir fimm sem lifðu slysið af þurftu að hafast við í rifnum gúmbjörgunarbát hálffullum af sjó í einar 14 klukkustundir þar til hjálp barst. Margar þjóðir tóku þátt í björguninni en Danir náðu með naumundum að bjarga mönnunum. Hin opinbera skýring á orsökum slyssins var lélegur frágangur síldartunna en ekki hefur þrátt fyrir það tekist að útiloka sögusagnir um að hugsanlega hafi kafbátur átt þátt í því að Suðurlandið fórst.

Um myndina

  • Flokkur: Heimildamynd
  • Frumsýnd: 28. desember, 2014
  • Lengd: 75 mín.
  • Tungumál: Íslenska

Aðstandendur og starfslið

Leikarar

Fyrirtæki

Þátttaka á hátíðum

  • Edduverðlaunin / Edda Awards, 2015 – Verðlaun: Heimildarmynd ársins.
  • Nordische Filmtage Lübeck, 2015