Hvað er svona merkilegt við það fjallar um skrautlega kvennabaráttu níunda og tíunda áratugarins. Myndin rekur sögu Kvennalistans og annara kvenfrelsishræringa á gróskumiklum tímum og hvað gerist þegar grasrótarsamtök storma inn í hið skipulagða kerfi. Við lendum þó árið 2015 eftir nokkur ferðalög m.a. til Afghanistan.

Viðmælendur eru flestir þjóðþekktir fyrir störf sín á ýmsum vettvangi. Meðal annara eru þar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Ragnhildur Gísladóttir, Salome Þorkelsdóttir, Edda Björgvinsdóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir, Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Guðrún Agnarsdóttir og margar fleiri kempur.

Um myndina

  • Flokkur: Heimildamynd
  • Frumsýnd: 23. október, 2015, Bíó Paradís
  • Lengd: 73 mín.
  • Tungumál: Íslenska

Aðstandendur og starfslið

Fyrirtæki

Þátttaka á hátíðum

  • Edduverðlaunin / Edda Awards, 2016 – Verðlaun: Heimildarmynd ársins.
  • Skjaldborg, 2015 – Verðlaun: Vann Einarinn – áhorfendaverðlaunin fyrir bestu mynd.
  • Nordisk Panorama, 2015

Meira um myndina hér: http://krummafilms.com/portfolio-item/hvad-er-svona-merkilegt-vid-thad/