Aðeins 23 klukkustundum eftir skjálftann á Haiti árið 2010, lenti flugvél með íslenska alþjóðasveit innaborðs á flugvellinum á Haiti. Sveitin varð fyrsta alþjóðasveit á vettvang og fékk það hlutverk að hefja skipulagninu björgunarstarfs á Haiti. Þar reyndi á hvert einasta atriði sem æft hafði verið á úttektaræfingu árið áður og miklu meira en það. Við ótrúlegar aðstæður, tókst íslenskum björgunarsveitarmönnum að bjarga þremur konum á lífi úr rústunum á Haiti.
Í september 2009 barst íslensku alþjóðabjörgunarsveitinni útkall frá eyjunni Thule í Norðurhöfum. Jarðskjálfti upp á 7,3 á Richter-skala hafði gjöreyðilagt borgina Cave Town þar sem 1,5 milljón manna bjuggu. Fyrir lá beiðni frá Sameinuðu þjóðunum um aðstoð í skaðalandi og brást íslenska sveitin strax við.
Í raunveruleikanum var eyjan Thule tilbúningur einn. Tilgangurinn með útkallinu var stór úttekt á vegum Sameinuðu þjóðanna þar sem þær fóru yfir stöðu og getu íslensku sveitarinnar í því skyni að skilgreina hana sem meðalstóra sveit, klára til að fara í útkall á alþjóðavettvangi, ef að kallið kæmi einhvern tíma í framtíðinni.
Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin stóðst prófið með glans. En þegar úttektinni lauk og skírteinið langþráða var afhent, lét einn úttektaraðilinn þau orð falla að það væru litlar líkur á því að íslenska sveitin yrði kölluð út fyrsta kastið ef stórútköll yrðu – og engar líkur yrðu á því að sveitin yrði fyrst á vettvang. En það liðu einungis fjórir mánuðir þar til sveitin sýndi og sannaði dug sinn og viðbragðsflýti og sýndu fram á að úttektaraðilinn hafði rangt fyrir sér. Þann 12. janúar 2010 dundu hræðilegar hörmungar yfir á Haiti. Jarðskjálfti upp á 7,3 á Richter lagði höfuðborgina Port au Prince í rúst.
Um myndina
- Flokkur: Heimildamynd
- Lengd: 70 mín.
- Tungumál: Íslenska
Aðstandendur og starfslið
- Leikstjórn: Magnús Viðar Sigurðsson, Margrét Jónasdóttir
- Handrit: Margrét Jónasdóttir
- Stjórn kvikmyndatöku: Ingvar Þórisson, Andri Ómarsson
- Klipping: Hreiðar Júlíusson
- Aðalframleiðandi: Margrét Jónasdóttir
Fyrirtæki
- Framleiðslufyrirtæki: Sagafilm