Á kaldri vetrarnóttu siglir drekkhlaðinn frystitogari inn í gömlu höfnina í Reykjavík. Í frystilestinni eru 20.000 fiskikassar, hitastigið er -35 C. Hópur manna hefur tvo sólarhringa til að tæma skipið. Á meðan við fylgjumst með þeim framkvæma hið ómögulega heyrum við sögur af karlmennsku og rómantík, gamni og dauðans alvöru.
Um myndina
- Flokkur: Heimildamynd
- Frumsýnd erlendis: 17. apríl, 2016, Visions du Réel
- Lengd: 74 mín.
- Tungumál: Íslenska, pólska
Aðstandendur og starfslið
- Leikstjórn: Hulda Rós Guðnadóttir
- Handrit: Hulda Rós Guðnadóttir, Helga Rakel Rafnsdóttir, Hinrik Þór Svavarsson
- Stjórn kvikmyndatöku: Dennis Helm
- Klipping: Kristján Loðmfjörð
- Tónlist: Joseph Marzolla, Prins Póló
- Aðalframleiðandi: Helga Rakel Rafnsdóttir
- Meðframleiðandi: Þorvarður Björgúlfsson
Fyrirtæki
- Framleiðslufyrirtæki: Skarkali ehf.
- Meðframleiðslufyrirtæki: Kukl ehf
- Styrkt af: Kvikmyndamiðstöð Íslands
- Sala og dreifing erlendis: Deckert Distribution
Þátttaka á hátíðum
- Visions du Réel, 2016
- Warsaw Film Festival, 2016
- Nordische Filmtage Lübeck, 2016