Söguþráður

Heimildamynd í leikstjórn Ásthildar Kjartansdóttur um tvær taílenskar konur, sem búa með íslenskum mönnum norður í landi. Myndin segir sögu Noi og Pam en þær eru frá litlu þorpi í norðurhluta Taílands þar sem flestir íbúarnir lifa af hrísgrjónarækt og búa við kröpp kjör.

Noi og Pam, sem eru frænkur, flytja tvítugar að aldri til Bangkok í leit að vinnu í von um að geta hjálpað fjölskyldum sínum eftir uppskerubrest í þorpinu. Eftir tíu ára strit í verksmiðjum á lágum launum fá þær nóg og ákveða að leita betri framtíðar í Evrópu. Verður það til þess að leiðir þeirra og Ísaks og Sveinbjarnar liggja saman árið 1997.

Myndin fjallar um væntingar Noi og Pam um lífið og framtíðina og varpar ljósi á hvernig sambúðin gengur með Íslendingum, að sögn Ásthildar. Noi býr með Ísaki og Pam með Sveinbirni í Öxarfjarðarhéraði í Norður-Þingeyjarsýslu en Ásthildur rekur ættir sínar í þennan landshluta.

Um myndina

  • Flokkur: Heimildamynd
  • Frumsýnd: 17. október, 2002, Háskólabíó
  • Lengd: 75 mín.
  • Tungumál: Enska, Íslenska
  • Titill: Noi, Pam og mennirnir þeirra

Aðstandendur og starfslið

Fyrirtæki

Þátttaka á hátíðum

  • Edduverðlaunin / Edda Awards, 2002 – Verðlaun: Tilnefnd fyrir Heimildarmynd ársins.

Smelltu þér á heimasíðu myndarinnar hér.