Northern Lights – Fantastic Film Festival

Ævintýri, hrollvekja, húmor og H.C. Andersen á Stokkseyri um hrekkjavöku í boði

 

Frítt inn á allar sýningar og viðburði hátíðarinnar!

Þriðja Northern Lights – Fantastic Film Festival verður haldin dagana 30. október til 2. nóvember á Fisherinn – Culture Center á Stokkseyri. Hátíðin sýnir yfir 50 alþjóðlegar „fantastic“ (ævintýri, fantasía, hrollvekja, vísindaskáldskapur) stuttmyndir sem keppa til veglegra verðlauna.

Verðlaun er veitt í tveim flokkum á hátíðinni, AURORA Award fyrir bestu leiknu myndina og NEXUS Award fyrir bestu teikni/hreyfimyndina. Í dómnefnd sitja m.a. Óskarstilnefndi höfundurinn Pamela Ribon (Moana, Nimona, My Year of Dicks) og Hugleikur Dagsson.

Hátíðin fékk innsendar myndir á Filmfreeway frá 34 löndum í 5 heimsálfum og valdi til þátttöku 53 myndir frá 23 löndum (sjá nánar hér). Þeirra á meðal eru margverðlaunaðar myndir sem hafa verið nýlega sýndar á virtum alþjóðlegum kvikmyndahátíðum. Þess má geta að ein þeirra mynda sem var sýnd og keppti á hátíðinni í fyrra, I’m Not a Robot, hlaut í framhaldinu Óskarsverðlaunin fyrir bestu leiknu stuttmynd ársins.

Fjöldi erlendra höfunda og leikstjóra verða viðstaddir hátíðina til að fylgja myndum sínum eftir eins og mikið af því íslenska kvikmyndagerðarfólki sem tekur þátt í hátíðinni.

Þematengdir sérviðburðir hátíðarinnar eru t.d. Fantastic Film – Pub-quiz, Hrekkjavökubúningapartý og fjölskylduvænt Hrekkjavökubíó. Öll geta fundið eitthvað „fantastic“ við sitt hæfi á hátíðinni.

Þematengdir bransaviðburðir hátíðarinnar eru m.a.

Spjallborð: „Fantastic“ handritasmíð – Að skapa heima handan veruleikans.

Samtal við handritshöfunda og kvikmyndagerðarfólk sem þorir að ímynda sér það sem liggur handan hins hversdagslega.

Frá Ævintýrum til Martraða!
Í tilefni að 150 ára dánarafmælis H.C. Andersen er sunnudagurinn tileinkaður myrku ímyndunarafli meistarans, íslenskum bókmenntaarfi og „fantastic“ sagna- og kvikmyndagerð.

Frumsýning – Adorable Humans (2025) / Q&A

Fjögurra þátta dönsk safnmynd innblásin af sumum óhugnanlegustu hrollsögum H.C. Andersen. Dönsku kvikmyndahöfundarnir og leikstjórarnir Michael Kunov & Michael Panduro taka þátt í spurt & svarað eftir sýninguna.

Spjallborð: H.C. Andersen / Frá ævintýrum til martraða

Spjallborð þar sem rætt er um áhrif íslensks bókmenntaarfs á Andersen og í kjölfarið, áhrif hans á komandi kynslóðir ævintýra- og hrollvekjuhöfunda.

Sjá um nánar um viðburð hér.
Öll dagskrá í heild sinni hér.

Deila
Scroll to Top