Wift konur létu ekki storminn stoppa sig í gærkvöldi og héldu á aðalfund Wift á Hallveigarstöðum.

Á fundinum tók við ný stjórn Wift. Frá árinu 2011 hafa leikstjórarnir Kristín Jóhannesdóttir, Marsibil Sæmundardóttir,  Silja Hauksdóttir og Vera Sölvadóttir setið í stjórn Wift ásamt Dögg Mósesdóttur sem hefur gengt formannsembættinu.

Í nýrri stjórn Wift sitja Eva Sigurðardóttir (framleiðandi, handritshöfundur og leikstjóri), Helga Einarsdóttir (sjónvarps- og kvikmyndagerðarkona), Tinna Hrafnsdóttir (leikstjóri, handritshöfundur og leikkona) og Dögg Mósesdóttir ( leikstjóri og handritshöfundur) en nýr formaður er Helga Rakel Rafnsdóttir (leikstjóri, handritshöfundur og framleiðandi).

Við þökkum fráfarandi stjórn fyrir vel unnin störf og óskum nýrri stjórn velfarðnaðar í starfi.