Um myndina
Myndin fjallar um heimkomu íslenska plötusnúðsins Illuga, sem hefur búið í Oakland í Kaliforníu frá barnsaldri og getið sér gott orð þar. Myndin fylgir Illuga eftir á 3 vikna tónleikaferðalagi um Ísland þar sem hann sýndi hæfni sína sem „scratch” og „trick” plötusnúður og skoðar íslensku hip-hop senuna með augum aðkomumannsins.
- Flokkur: Heimildamynd
- Tegund: Tónlistarmynd
- Lengd: 28 mín. 46 sek.
- Tungumál: Enska
Aðstandendur og starfslið
- Leikstjórn: Ragga M. Thordarson
- Handrit: Ragga M. Thordarson
- Stjórn kvikmyndatöku: Haukur Sigurbjörnsson, Andrew Casden
- Klipping: Gunnar B. Guðbjörnsson, Marteinn Einarsson, Baldvin Z
- Tónlist: Illugi Magnússon
- Aðalframleiðandi: Ragga M. Thordarson, Viðar Garðarsson
Fyrirtæki
- Framleiðslufyrirtæki: SPARK
Þátttaka á hátíðum
- Skjaldborg, 2008