Myndin greinir frá óvenjulegri fegurðarsamkeppni, sem fór fram í samkomuhúsinu í Hnífsdal, þar sem keppt var í óbeislaðri fegurð. Eina skilyrðið fyrir þátttöku var að keppendur væru venjulegir, allrar stærðar og gerðar, og þeir máttu ekki hafa farið í lýtaaðgerð.

Óbeisluð fegurð segir frá óvenjulegri fegurðarsamkeppni sem fram fór í samkomuhúsinu í Hnífsdal vorið 2007. Reglurnar voru einfaldar: Keppendur máttu vera af báðum kynjum en urðu þó að vera komnir af barnsaldri og vera sem upprunalegastir. Þess var ekki krafist af keppendum að grenna sig eða þyngja og það taldist þeim til tekna ef þeir höfðu hrukkur, slit, aukakíló, skalla eða voru komnir við aldur. Þessi líflegi og andófskenndi viðburður vakti fólkið í þessu litla þorpi, sem og víðar, til umhugsunar um „fegurðarstaðla samtíðarinnar“ sem að sögn skipuleggenda eru gengnir langt út fyrir allan þjófabálk.

Um myndina

  • Flokkur: Heimildamynd
  • Frumsýnd: 5. október, 2007, Regnboginn
  • Lengd: 57 mín.
  • Tungumál: Íslenska

Aðstandendur og starfslið

Fyrirtæki

Þátttaka á hátíðum

  • Reykjavík International Film Festival, 2007