Í myndinni fáum við að kynnast íslenskum sjávarútvegi og því sem fólk er að sýsla við hjá Odda flesta daga. Myndin er kynningarmynd um fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtækið Odda hf, sem er burðarstólpi atvinnulífsins á Patreksfirði með rúmlega 40 ára gamla farsæla sögu. Oddi rekur nútímalega fiskvinnslu og fiskimiðin þar sem fyrirtækið sækir árlega sín 4 þúsund tonn af hráefni eru hrein og ómenguð.

Fyrirtækið hefur alla tíð lagt mikla áherslu á að framleiða úr besta mögulega hráefni sem völ er á og er veitt á umhverfisvænan hátt. Oddi gerir meðal annars út Núp sem er 300 tonna línubátur búinn fullkomnustu tækjum. Stærsti hluti hráefnis til vinnslu Odda kemur af Núpi. Í myndinni sem er ætluð viðskiptavinum fyrirtækisins er stiklað á stóru í vinnsluferlinu.

Um myndina

  • Flokkur: Heimildamynd
  • Lengd: 13 mín.

Aðstandendur og starfslið

Þátttaka á hátíðum

  • Skjaldborg, 2011