Jóhann er þrítugur gistihússeigandi í miðborg Reykjavíkur sem hefur einangrað sig frá umheiminum í kjölfar fráfalls föður síns. Hann heldur til á gistihúsinu án þess að taka við gestum og hefur skapað sér sína eigin veröld þar sem hann þarf sem minnst að kljást við samfélagið og samborgarana. Inn í hans litlu veröld fléttast Finnur, níu ára gamall nágranni hans, sem á undir högg að sækja frá jafnöldrum sínum og er búsettur hjá rótlausri ömmu sinni. Á milli þeirra myndast sérstakt samband, þar sem þessar tvær einmana sálir tengjast vináttuböndum sem fátt virðist fá rofið.

Flokkur: Kvikmynd
Frumsýnd: 25. mars, 2002
Tegund: Drama
Lengd: 78 mín.
Tungumál: Íslenska

Aðstandendur og starfslið
Leikstjórn: Unnur Ösp Stefánsdóttir, Björn Thors
Handrit: Börkur Sigþórsson, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Björn Thors
Stjórn kvikmyndatöku: Börkur Sigþórsson
Klipping: Elísabet Ronaldsdóttir
Tónlist: Daníel Bjarnason
Aðalframleiðandi: Björn Thors, Unnur Ösp Stefánsdóttir
Meðframleiðandi: Guðmundur Sverrisson, Elísabet Ronaldsdóttir

Leikarar
Aðalhlutverk: Hilmir Snær Guðnason, Stefán Eiríksson, Kristbjörg Kjeld, Margrét Vilhjálmsdóttir

Framleiðslufyrirtæki: Réttur Dagsins
Styrkt af: Kvikmyndasjóður Íslands, Menningarborgarsjóður

Þátttaka á hátíðum
Montréal World Film Festival Canada, 2002
Filmvergband Sachsen Germany, 2002
Edduverðlaunin / Edda Awards, 2002 – Verðlaun: Tilnefnd fyrir Leikari ársins ( Hilmir Snær Guðnason).

Útgáfur
Sam-myndbönd, 2002 – VHS