Kvikmyndasjóður hefur tekið til sín umræðuna um hallan hlut kvenna á umliðnum áratugum þegar kemur að styrkveitingum úr sjóðnum. Á síðu Kvikmyndamiðstöðvar kemur fram að:
“Í ljósi þess að á síðastliðnum árum hefur hlutfall kvenkyns umsækjenda verið töluvert lægra en hlutfall karlkyns umsækjenda hvetur KMÍ konur til að sækja í auknum mæli um styrki úr Kvikmyndasjóði.
Við mat á umsóknum lítur Kvikmyndasjóður til þess hvort styrkurinn stuðli að jöfnun á stöðu kvenna og karla í kvikmyndagerð.
Bæði kvenkyns og karlkyns umsækjendur eru ennfremur hvattir til að huga að jafnvægi milli kynja þegar skipað er í listrænar lykilstöður einstaka mynda og gæta þess að reynsluheimi bæði kvenna og karla séu gerð skil í þeim.
Bechdel prófið er hentugt vinnutæki til að glöggva sig á hlut kynja í einstaka verkefnum, en þar er lögð áhersla á þrjá þætti:
1. Að í myndinni séu a.m.k. tvær kvenpersónur með nafni,
2. að þær eigi samtal,
3. um eitthvað annað en karlmenn.”
Í Samkomulagi um stefnumörkun fyrir íslenska kvikmyndagerð árin 2016-2019 kemur enn fremur fram að:
“Sett er það markmið að jafna hlut kynjanna í kvikmyndagerð með því að tryggja jafnt styrkhlutfall úr Kvikmyndasjóði til handritshöfunda, leikstjóra og framleiðenda. Í því skyni verði veittir tímabundnir sérstakir handrita- , þróunar- og framleiðslustyrkir til kvenna. Jafnframt er sett það markmið að jafna hlut kynjanna í öðrum listrænum stöðum í kvikmyndagerð, svo sem stjórn kvikmyndatöku, búningahöfunda, leikmyndahönnuða, tónskálda, hljóðhönnuða og klippara. Kvikmyndamiðstöð skal vinna að gerð matskerfis á grundvelli þessa á samningstímanum í samráði við Kvikmyndaráð.”
Sjá nánar hér:
http://www.kvikmyndamidstod.is/media/frettir/Samkomulag-um-stefnumorkun-fyrir-islenska-kvikmyndagerd-2016-2019.pdf
SÆKJA UM:
http://www.kvikmyndamidstod.is/kvikmyndasjodur/umsoknir/