Viðskiptahugmynd kviknar við eldhúsborðið. Bleikar pönnukökur með skinku og osti. Og þá er komið að því. Fyrsta Skakkakrepes veislan er haldin í Havarí. Hljómsveitin Mr. Silla leikur fyrir matargesti og krepesmeistarinn hefur vart undan að steikja. Í lok dagsins er talið upp úr kassanum og dæmið reiknað til enda. En kemst meistarinn heim til sín?
Um myndina
- Flokkur: Heimildamynd
- Lengd: 7 mín.
Aðstandendur og starfslið
- Leikstjórn: Berglind Häsler, Svavar Pétur Eysteinsson
- Tónlist: Svavar Pétur Eysteinsson, Mr. Silla
Þátttaka á hátíðum
- Skjaldborg, 2011