Sófakynslóðin er heimildamynd um aktívisma á Íslandi. Myndin var gerð til að vekja áhuga ungmenna á því að hafa áhrif á samfélag sitt með ýmiss konar aðferðum. Í myndinni er greint frá aðgerðarstarfi hópa og samtaka á borð við Femínistafélag Íslands, Amnesty International, Félagsins Ísland-Palestína auk ýmissa náttúruverndarhópa og tekin eru viðtöl við einstaklinga sem stunda margvíslegar aðgerðir.

Í Sófakynslóðinni er fjallað um ungt fólk sem hefur tekið þátt í almennt hávaðasömum mótmælum og verið með uppsteyt í kringum álverksmiðjur og virkjanaframkvæmdir sem er lokið eða eru á lokasprettinum. Jafnframt er spurt hvort við hreiðrum ekki um okkur í sófanum og látum allt yfir okkur ganga.

Um myndina

  • Flokkur: Heimildamynd
  • Lengd: 35 mín.
  • Tungumál: Íslenska

Aðstandendur og starfslið

Fyrirtæki

Þátttaka á hátíðum

  • Aarhus Independent Film Festival, 2008 – Verðlaun: Tilnefnd til Nordic Independent Film verðlaunanna.
  • Skjaldborg, Icelandic Documentary Festival, 2007 – Verðlaun: Valin besta myndin
  • Reykjavík International Film Festival, 2007