Stelpurnar okkar fjallar um baráttu íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu um að komast á Evrópumeistarmótið í Finnlandi 2009 fyrst allra íslenskra landsliða. Í myndinni kynnumst við litríkum stelpum, draumum þeirra og metnaði. Samkeppnin um að komast í liðið er hörð og stelpurnar eiga í baráttu innbyrðis sem andstæðingar með félagsliðum sínum. Þóra Tómasdóttir og Hrafnhildur Gunnarsdóttir fylgdust með landsliðinu í hálft annað ár þegar stelpurnar brutu blað í knattspyrnusögu Íslands og urðu fyrsta íslenska landsliðið til að komast á lokamót í knattspyrnu.
Um myndina
- Flokkur: Heimildamynd
- Frumsýnd: 14. ágúst, 2009, Háskólabíó
- Lengd: 91 mín. 30 sek.
- Tungumál: Íslenska
Aðstandendur og starfslið
- Leikstjórn: Þóra Tómasdóttir
- Handrit: Þóra Tómasdóttir
- Klipping: Elísabet Ronaldsdóttir
- Tónlist: Barði Jóhannsson
- Aðalframleiðandi: Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Fyrirtæki
- Framleiðslufyrirtæki: Krumma Films ehf.
- Í samvinnu við: RÚV
- Styrkt af: Kvikmyndamiðstöð Íslands
Útgáfur
- Krumma Films ehf., 2009 – DVD
Sjá meira um myndina hér: http://krummafilms.com/portfolio-item/stelpurnar-okkar/