Skömmu eftir hernámið í seinni heimsstyrjöldinni fór allt á annan endann í íslensku samfélagi vegna samskipta kvenna við setuliðið. „Ástandsstúlkur“ voru fordæmdar í dagblöðum og ráðamenn þjóðarinnar töluðu um að lauslæti og skækjulifnaður ógnaði íslensku þjóðerni og þjóðarsóma. Í kjölfarið var gripið til fordæmalausra mannréttindabrota; sjálfræðis- og frlesissviptinga ungra kvenna undir yfirskyni björgunar.

Heimildamyndin Stúlkurnar á Kleppjárnsreykjum: Lauslæti og landráð sviptir hulunni af myrkum kafla sögunnar sem hefur legið í þagnargildi í áratugi.

Um myndina

  • Flokkur: Heimildamynd
  • Frumsýnd: 8. október, 2015
  • Lengd: 65 mín.
  • Tungumál: Íslenska

Aðstandendur og starfslið

Þátttaka á hátíðum

  • Skjaldborg, 2015