Segir sögu þriggja kynslóða kvenna sem búa í sama húsinu í finnskri sveit. Árið 1942 er Saima ung og spræk kennslukona sem rekur heimilið af myndarskap meðan maður hennar er á vígstöðvunum. Hún á í leynilegu sambandi við sjarmerandi einhentan hermann og þau eignast saman dótturina Tuulikki. Við fylgjumst með henni á ofanverðum áttunda áratugnum þar sem hún dvelst í húsinu og elur upp dóttur sína án manns síns. Hún er róttækur feministi og höll undir frjálsar ástir en reynist erfitt að samþætta skyldur og langanir. Í nútímanum fylgjumst við með uppkominni Salla, hún er lesbía og fræðimaður með bein í nefinu. Salla snýr aftur í hús móður sinnar og ömmu til að vera í ró og næði en fyrirferðarmikill nágranni setur strik í reikninginn.

Flokkur: Kvikmynd
Frumsýnd: 1. ágúst, 2012, Bíó Paradís
Tegund: Drama
Lengd: 105 mín.
Tungumál: Finnska

Aðstandendur og starfslið
Leikstjórn: Saara Cantell
Handrit: Saara Cantell
Stjórn kvikmyndatöku: Marita Hällfors
Klipping: Sævar Guðmundsson
Tónlist: Sid Hille
Aðalframleiðandi: Outi Rousu
Meðframleiðandi: Snorri Þórisson

Leikarar
Aðalhlutverk: Elín Helena Petersdóttir, Meri Nenonen, Irina Björklund, Senja Mäkiaho, Lauri Tanskanen

Framleiðslufyrirtæki: Pystymetsä Productions
Meðframleiðslufyrirtæki: Pegasus Pictures
Styrkt af: Finnish Film Foundation, Kvikmyndamiðstöð Íslands